NÝTT! Sér strákatímar. Nú bjóðum við upp á sér strákatíma í ballett. Sjá frekari upplýsingar hér til hliðar undir „NÝTT! Stráka-tímar“
1x í viku í 12 vikur, hver kennslustund er 40 mín.
Kennsla fer fram í húsnæði skólans í Skipholti 50c, Grafarvogi og í Kópavogi.
Forskóli er fyrir börn á aldrinum 3-6 ára. Raðað er í hópa eftir aldri, 3-4, 4-5 og 5-6 ára.
Nemendur sækja tíma einu sinni í viku, um helgi eða á virkum degi.
Sjá allar upplýsingar um tíma og daga fyrir hvern aldurshóp fyrir sig hér til hliðar.
Börnin læra undirbúningsæfingar í klassískum ballett sem hæfa aldri þeirra og þroska. Æfingar og spor eru útfærð í gegnum litla látbragðsdansa og skemmtilega leiki. Börnin læra æfingar sem liðka og styrkja líkamann. Þau læra að telja í takt við tónlist, vera í röð og fylgja settum reglum.
Tímarnir eru þroskandi og skemmtilegir og veita þjálfun í samhæfingu líkamans og efla mikið hreyfiþroskann. Börnin læra einnig æfingar sem liðka og styrkja líkamann. Þau læra að telja í takt við tónlist, vera í röð og fylgja settum reglum.
Foreldrasýning í sal í lok annar á haustönn.
Nemendasýning í Borgarleikhúsinu á vorönn.
Hámark 18 í hóp, alltaf 2-3 kennarar.
Skráning er bindandi.